- book
Kaspían konungsson (Icelandic)
Kaspían konungsson er ein hinna heimsfrægu ævintýrabóka C. S. Lewis um töfralandið Narníu og börnin fjögur sem kölluð eru þangað til þess að koma þar lagi á hlutina. Í þetta sinn geisar þar borgarastyrjöld milli valdræningjans Mírasar og dverganna og dýranna, en foringi þeirra er Kaspían konungsson. Börnin verða að gera út um þennan ófrið og þeim tekst það með hjálp ljónsins Aslans, en þó ekki fyrr en eftir hrakninga, undur og stórmerki. Bókin er sjálfstætt framhald bókanna: Frændi töframannsins, Ljónið, Nornin og skápurinn og Hesturinn og drengurinn hans. (Heimild: Bókatíðindi)
Series
Ævintýralandið Narnía
- book
Kaspían konungsson (Icelandic)
Kaspían konungsson er ein hinna heimsfrægu ævintýrabóka C.S. Lewis um töfralandið Narníu. Og nú hittum við aftur fjórmenningana Pétur, Súsönnu, Játvarð og Lúsíu sem við kynntumst í sögunni um Ljónið, nornina og skápinn. Þau eru kölluð til hjálpar hinum unga konungssyni, Kaspían, réttbornu konungsefni Narníu. Hann á í höggi við hinn grimma Míras sem heldur Narníu í heljargreipum. Það reynir mikið á þolrif barnanna í þessu magnaða ævintýri og enn á ný kemur ljónið Aslan þeim til bjargar. (Heimild: Bókatíðindi)
Series
Sögur frá töfralandinu Narníu #4