BORGARBÓKASAFNIÐ
Borðspil

Langar vinahópinn að prófa nýtt spil á næsta spilakvöldi eða fjölskylduna að grípa eitt með sér í bústaðarferðina? Komdu og fáðu lánuð skemmtileg spil sem henta þínum hópi eða spilaðu á staðnum. Í hillum Borgarbókasafnsins má finna sístækkandi borðspilasafni til útláns en spilin er að finna á öllum átta söfnunum. Boðið er upp á fjölbreytt úrval borðspila fyrir alla aldurshópa; börn, ungmenni og fullorðna. Öll borðspil eru lánuð í 14 daga. Borgarbókasafnið vill gjarnan hýsa hverskonar spilaviðburði svo ekki hika við að hafa samband.