BORGARBÓKASAFNIÐ

Hvenær notaðir þú bókasafnið í fyrsta sinn?
„Ég byrjaði að nýta bókasafnið strax eftir að ég kom til Íslands. Ég kom hingað með litla dóttur og þar sem ég á enga ættingja hér, stakk eiginmaður minn, sem er Íslendingur, upp á því að við færum á bókasafnið í krílastund. Ég kem frá Belarus og þegar við bjuggum þar talaði hann oft um bókasöfn. Ég skildi ekki hvers vegna, því þótt það séu bókasöfn í Belarus eru þau ekki sérlega vinsæl. Fólk kemur þangað bara til að sækja bækur og þar er ekki mikið um dagskrá. Ég hafði því enga hugmynd um að svona viðburðir væri hægt að halda á bókasafni. Þetta reyndist mér, sem útlendingur og móður, afar dýrmætt.
Og svo héldum við áfram að koma til að sækja bækur, og nú kem ég í Samveru til að æfa mig í íslensku. Þetta er eins og gjöf fyrir mig. Þegar ég las fyrst um Samveru trúði ég varla mínum eigin augum – að þetta sé til og sé ókeypis.“
Af hverju kemur þú í Samveru?
„Maðurinn minn er íslenskur og fjölskylda hans er hér, en mig vantaði samfélag þar sem ég get æft íslensku án þess að vera dæmd. Þess vegna skiptir hið hlýlega andrúmsloft hér í Samveru svo miklu máli.“
Hvaða áhrif hefur það að koma í Samveru haft á íslenskuna þína?
„Mér finnst ég vera miklu betri í að tala íslensku hér en í raunveruleikanum. Þetta er mjög góður vettvangur til að æfa sig og öðlast meira sjálfstraust fyrir raunverulegar aðstæður. Ég finn hjá mér meira hugrekki til að nota íslensku í daglegu lífi. Auk þess ræðum við um ýmislegt sem ég hef ekki heyrt um áður – ekki bara nýjan orðaforða, heldur líka atburði í borginni sem ég hefði annars ekki vitað af.“
Hversu mikilvægt er að Samvera eigi sér stað úti í náttúrunni?
„Mjög mikilvægt! Annars myndi ég ekki fara út, því ég er ekki mikil náttúrumanneskja. En föstudagar eru mínir dagar og mér finnst ég vera að gera eitthvað sem er gott fyrir mig! Ég kom líka með dóttur mína einu sinni eða tvisvar þegar leikskólinn var lokaður á föstudegi, og allir voru svo vingjarnlegir. Það er bara góð stemning hérna fyrir alla.“
Er eitthvað annað sem þú vilt segja um bókasafnið?
„Ég byrjaði að lesa á íslensku, en maðurinn minn á bara mjög erfiðar bækur heima, og svo eigum við barnabækur fyrir dóttur mína. Við eigum því engar bækur á miðstigi sem henta mér. Auk þess er gríðarlega dýrt að kaupa bækur. Ég les kannski þrjár bækur í viku, svo það yrði allt of dýrt að kaupa þær allar. Þess vegna skiptir það mig svo miklu máli að geta komið á bókasafnið. Ég finn ekki orð til að lýsa því hversu mikilvægt bókasafnið hefur verið.“

Samvera eru vikulegir viðburðir sem sameina fólk sem er að læra íslensku og fólk með íslensku sem móðurmál til að spjalla, kynnast og læra hver af öðrum. Vertu með! Alla föstudaga 4. september - 4. desember, kl. 11.00 til 13.00 í Gerðubergi.
Hér er viðburðurinn á Facebook.