BORGARBÓKASAFNIÐ

Skoski rithöfundurinn Ali Smith hlýtur Dublin-bókmenntaverðlaunin 2026 fyrir skáldsögu sína Gliff. Þetta er í þrítugasta og fyrsta skiptið sem verðlaunin eru veitt.
Tilnefningar berast á hverju ári frá bókasöfnum víða að úr heiminum og var það að þessu sinni tilnefning Katona József Könyvtár-bókasafnsins í Ungverjalandi sem bar sigur úr býtum.
Verðlaunin nema 100.000 evrum eða tæplega 15 milljónum króna. 69 verk frá 36 löndum voru tilnefnd í ár og þar á meðal 30 verk sem voru þýdd á ensku úr 17 tungumálum. Meðal tilnefndra verka var skáldsagan Myrkrið á milli stjarnanna eftir Hildi Knútsdóttur og glæpasagan Hildur eftir Satu Rämö.
Hér fyrir neðan má finna þau verk sem prýddu stuttlista verðlaunanna í ár og eru í safnkosti Borgarbókasafns og Rafbókasafns auk annarra verka tilnefndra höfunda.