
Um þennan viðburð
Verkstæðin | Aðstoð við saumaskapinn
Ráðgjöf við saumaskapinn og kennsla á saumavélar.
Á Verkstæðinu í Árbæ er góð aðstaða fyrir þau sem hafa gaman að saumaskap en þar er að finna tvær venjulegar saumavélar og eina overlock vél. Á Verkstæðinu er því hægt að fá útrás fyrir sköpunargleðina; sníða, sauma eða gera við flíkur.
Við bjóðum upp á aðstoð einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina en þá eru Andzelina Kusowska Sigurðsson og Elínborg Ágústsdóttir gestum innan handar. Fylgist með í viðburðadagatalinu og á Facebook síðu safnsins.
Upplagt fyrir þau sem eru að velta einhverju fyrir sér varðandi saumaskapinn, hvort sem um byrjendur eða lengra komna er að ræða. Það er alltaf gott að fá ráðgjöf og spjalla um þau verkefni sem unnið er að.
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
Sími: 411 6250