
Um þennan viðburð
Klúbbur | Anime fyrir 13-16 ára
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.
Við hittumst ANNAN HVERN þriðjudag á fimmtu hæðinni í Grófinni í myndasögudeildinni. Í klúbbnum gerum við margt skemmtilegt eins og að gera merki, spila borðspil, cosplay, spjalla um Anime svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, teiknismiðjur, kynningar á Anime bókum og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!
Leiðbeinendur klúbbsins eru frá Borgarbókasafninu sem leggja sig sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og mottó þeirra er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald, en skráning er nauðsynleg með því að senda senda nafn, netfang og símanúmer á holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is