Um þennan viðburð
Frjálst flæði | Spuna- og leiklistarklúbbur
Alla mánudaga kl. 16:00 - 17:30 í OKinu, Borgarbókasafninu Gerðubergi
Fyrsti hittingur er 19. september.
Í klúbbnum er boðið upp á spuna og leik og við fáum að kynnast ýmsum leiklistaraðferðum, svo sem spunaleikhúsi (ýmsum aðferðum) frásagnar-, götu- og þátttökuleikhúsi. Einnig verður farið í búningagerð og leikmyndahönnun og kynntar aðferðir til að semja og skapa saman leikhúsverk. Leiklistarklúbburinn er ætlaður ungu fólki á aldrinum 14-19 ára. Kennslan fer fram á einfaldri íslensku og er opin öllum sem vilja kynna sér töfra leikrænnar tjáningar sem byggir brú á milli tungumála og menningarheima.
Þekktir sviðslistamenn koma í heimsókn, þ.á.m. Vigdís Hafliðadóttir í hljómsveitinni Flott sem verður með námskeið í spunatækni og leikarinn Vilhelm Neto sem verður með uppistand- og spunanámskeið.
Eftir áramótin verður svo haldið áfram og ákveðið efni í leiksýningu eða gjörning fyrir vorið 2023.
Leiklistarklúbburinn er settur á laggirnar með styrk úr sjóði Evrópuárs unga fólksins.
Skráning fer fram hér að neðan.
Umsjónarmenn eru:
Lukas Gregor Bury, myndlistamaður og sérfræðingur ungmennastarfs í OKinu
lukas.gregor.bury@reykjavik.is | s. 411 6184
Ólöf Sverrisdóttir, leikkona og verkefnastjóri hjá Borgarbókasafninu
olof.sverrisdottir@reykjavik.is | s. 664 7718