Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:30
Verð
Frítt
Tungumál
Mörg tungumál
Tungumál

Spjöllum með hreim | að framtíðast

Laugardagur 7. mars 2026

Komdu á Framtíðarfestivalsútgáfu af vikulegum íslenskuæfingum okkar! Líkt og alltaf eru öll velkomin, óháð færni í íslensku, byrjendur jafnt sem lengra komin. Þátttaka ókeypis, ekki þarf að skrá sig. Frábærir kennarar til að aðstoða og te/kaffi á boðstólnum.

Að þessu sinni ætlum við að búa til ný íslensk orð fyrir framtíðina: Hvaða orð vantar í íslenskan orðaforða til að tala um það sem þig langar að tala um? Kannski orð sem þú saknar úr móðurmáli þínu? Eða alveg nýtt orð? Komdu og búðu til orð með okkur! Við verðum einnig með bækur og borðspil fyrir þau sem kjósa hefðbundnari verkefni.

Viðburðurinn á Facebook

Framtíðarfestivalið fer fram 1. mars til 14. mars 2026 á Borgarbókasafninu Grófinni (miðbænum).
Allir viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum. Dagskráin má finna HÉR.

Frekari upplýsingar:
Martyna Karolina Daniel - Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is