Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:30
Verð
Frítt
Tungumál
Kennararnir tala ýmis tungumál
Tungumál

Skoðum og spjöllum

Laugardagur 23. nóvember 2024

Komdu og æfðu þig að tala íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi og hittu fleiri sem eru líka að læra. Öll velkomin - líka byrjendur! 

Þátttaka er ókeypis og engin skráning, bara mæta!

Langar þig að rölta um miðborg Reykjavíkur og skoða skemmtilegar sýningar á fjölbreyttum menningarstofnunum á meðan þú æfir þig að spjalla á íslensku? Við hittumst einu sinni í mánuði og kynnumst borginni betur. Leiðsagnirnar fara fram á íslensku en reyndur íslenskukennari fylgir hópnum og aðstoðar ef á þarf að halda. 
Við hittumst á Torginu, 1.hæðinni á Borgarbókasafninu Grófinni (miðbær), fáum okkur kaffi/te og förum yfir orð sem nýtast munu í safnaheimsókn dagsins, áður en við röltum saman af stað í smá vettvangsferð og kynnumst borginni betur.

Við verðum einnig með fjölbreytt safn borðspila fyrir öll getustig, líka byrjendur, ef einhver kjósa heldur að vera áfram á bókasafninu og nota spil til að æfa sig að tala íslensku.

Skoðum og spjöllum er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim (Let's chat with an accent), þar sem boðið er upp á fjórar skemmtilegar og ólíkar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara.

Hér getur þú lesið meira um Spjöllum með hreim og séð alla dagskrána. 

Viðburður á Facebook
 

Fyrir nánari upplýsingar: 
Hildur Björgvinsdóttir
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is