AFLÝST | Tónlistarsmiðja fyrir 12-15 ára
Hefur þú brennandi áhuga á tónlist?
Fimm daga tónlistarsmiðja fyrir byrjendur sem og lengra komna. Ef þú hefur áhuga á söng, rappi, textagerð, hljóðfæraleik eða pródúseringu er þetta smiðja fyrir þig.
Smiðjan verður kennd alla virka daga frá 13.00-15.00.
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að semja tónlist og ekki er nauðsynlegt að kunna á hljóðfæri til að taka þátt. Frítt er að skrá sig á smiðjuna og eru allir 13-15 ára velkomnir.
Meðal annars verður farið yfir:
- Textaskrif og innblástur
- Hljómaganga
- Hvað gerir lög catchy?
- Form og uppbyggingu
- Pródúseringu og upptöku
Þátttakendur fá að spreyta sig á ýmsum æfingum og skrifa eigin lög í litlum hópum, auk þess fá þeir tækifæri til að spila lög sín fyrir áhorfendur.
Umsjón með smiðjunni hefur Jóhannes Ágúst en hann er nýlega útskrifaður úr B.A. námi í lagaskrifum og pródúseringu við Linnéuniversitet í Svíþjóð og starfar við tónlistargerð á Íslandi.
Nánari upplýsingar:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is