Söngstund með Önnu Siggu og Aðalheiði
Söngurinn losar um gleðiefni í líkamanum

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tónlist

Syngjum saman | Söngstund

Mánudagur 27. nóvember 2023

Anna Sigríður Helgadóttir söngkona leiðir jólalegan samsöng við meðleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur píanóleikara.

Lögin sem sungin eru ættu að vera flestum kunnug og að þessu sinni tengjast þau jólahátíðinni. Textanum varpað á skjá svo ekkert ætti að stoppa söngelskandi gesti safnsins. 

Öll velkomin og engrar söngreynslu krafist, hver syngur með sínu nefi og höfum gaman!

Anna Sigríður stundaði söngnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann í Reykjavík, þaðan sem hún lauk námi við framhaldsdeild árið 1989. Næstu þrjú árin sótti hún einkatíma hjá Prof. Rina Malatrasi á Ítalíu. Anna Sigríður hefur tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi, til að mynda einsöngstónleikum, óperu- og óperettuppfærslum, jazztónleikum og gospeltónleikum. Á árunum 2001 - 2012 starfaði hún sem tónlistarstjóri við Fríkirkjuna þar sem hún stjórnaði kór og söng við athafnir og einnig var hún leiðtogi í barna- og unglingastarfi Árbæjarkirkju um nokkurra ára skeið. Þá hefur Anna Sigríður sungið með sönghópunum Hljómeyki, Emil og Bjargræðiskvartettinum. 

Aðalheiður Þorsteinsdóttir hefur starfað sem píanóleikari og organisti með fjölda einsöngvara og kóra. Einnig hefur hún sinnt kennslu, útsetningum, tölvusetningu nótnabóka og starfað hjá Íslenskri tónverkamiðstöð.

 

Viðburðurinn á Facebook

 

Nánari upplýsingar veitir:

Jónína Óskarsdóttir, deildarbókavörður
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is | 411 6250