Um þennan viðburð
Námskeið | Sviðið er þitt – sviðsframkoma og orka
Staðsetning: 5. hæð
Athugið: Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið hér fyrir neðan.
Þátttakendur fá kynningu á uppruna listformsins ljóðaslamm, öðru nafni Poetry Slam. Við skoðum hvernig ljóðformið er notað í ljóðaslammi og þátttakendur fá innblástur, hvatningu og leiðsögn til að semja eigin ljóð eða prósa. Á námskeiðinu gefst tækifæri til að bera saman bækur við aðra þátttakendur og jafnvel lesa upp afrakstur námskeiðsins.
Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa samið sitt eigið ljóð eða prósa og langar að skoða skemmtilegar leiðir til að flytja verkið fyrir framan áhorfendur. Sviðið getur verið stórt og ógnvekjandi en á þessu námskeiði fá þátttakendur kennslu frá leikara um hvernig er hægt að taka sviðið í sátt og nýta það til fullnustu með öruggri og skemmtilegri sviðsframkomu.
Allt um Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins.
Leiðbeinandi: Steinunn Arinbjarnadóttir og Jón Magnús Arnarsson
Steinunn Arinbjarnardóttir útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2019. Eftir útskrift hefur hún starfað sem leikkona í Þjóðleikhúsinu , sjálfstæðum leikhópum og nú í uppfærslu í Borgarleikhúsinu.
Hún starfar einnig sem leiklistarkennari í Leiklistarskóla Borgarleikhússins og hefur kennt bæði í grunnskólum og menntaskólum leiklist.
Jón Magnús Arnarsson hefur verið viðloðandi ljóðaslamm frá upphafi vegferðar þess hér á landi en fékk fyrst áhuga á því árið 2001 þegar hann varð vitni að flutningi Saul Williams, Bandaríkjameistara í ljóðaslammi, á Hróarskeldu. Jóg Magnús útskrifaðist úr leiklist frá The Commedia School árið 2013. Eftir útskrift skrifaði hann og lék í tveimur einleikjum sem fluttir voru á Act Alone einleikjahátíðinni á Suðureyri.Hann er einn af stofnendum hópsins Golden Gang Comedy sem staðið hefur fyrir vikulegu uppistandi í Reykjavík um fimm ára skeið. Þá var hann ein af forsvarsmönnum fjöllistahátíðarinnar Reykjavík Fringe Festival sem var fyrst haldin sumarið 2018. Árið 2017 vann Jón Magnús Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins og tók í kjölfarið þátt í virtum alþjóðakeppnum í þeirri list. Fyrsta leikrit hans, Tvískinnungur var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í nóvember 2018. Þá þýddi hann leikgerð Rómeó og Júlíu sem flutt var í Þjóðleikhúsinu árið 2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100