Valgeir Gestsson með gítarinn
Valgeir Gestsson stýrir samsöng

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 13:45
Verð
Frítt
Tungumál
Íslenska o.fl.
Tónlist

Komdu að syngja!

Laugardagur 29. nóvember 2025

 

Nú verða raddböndin þanin og slegið á létta strengi í Spönginni.

 

Gítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja!

Tilvalið er að mæta með alla fjölskylduna – nú eða vinir og vinkonur að taka sig saman og mæta í söngstund. Engrar söngkunnáttu krafist, öll syngja með sínu nefni.

Það er allt í lagi þó að þú kunnir ekki textann, hann verður á skjá svo söngurinn verður leikur einn.

 

Viðburðurinn á facebook 

 

Nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild
valgeir.gestsson@reykjavik.is |  411 6100