
Valgeir Gestsson stýrir samsöng
Um þennan viðburð
Tími
13:00 - 13:45
Verð
Frítt
Bókasafn
Tungumál
Íslenska o.fl.
Tónlist
Komdu að syngja!
Laugardagur 27. september 2025
Nú verða raddböndin þanin og slegið á létta strengi í Spönginni.
Gítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja!
Tilvalið er að mæta með alla fjölskylduna – nú eða vinir og vinkonur að taka sig saman og mæta í söngstund. Engrar söngkunnáttu krafist, öll syngja með sínu nefni.
Það er allt í lagi þó að þú kunnir ekki textann, hann verður á skjá svo söngurinn verður leikur einn.
Komdu að syngja! verður einnig á dagskrá laugardagana 25. október og 29. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100