Dægurflugur með Unni Birnu og Dagnýju Höllu
Dægurflugur með systrunum Unni Birnu og Dagnýju Höllu

Um þennan viðburð

Tími
13:15 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska
Tónlist

Dægurflugur í hádeginu I Út og suður, norður og niður!

Laugardagur 21. febrúar 2026

Bassadætur og Leifur I Út og suður, norður og niður! 

Borgarbókasafnið Gerðubergi
Föstudaginn 20. feb. kl. 12:15-13:00
Borgarbókasafnið Spönginni
Laugardaginn 21. feb kl. 13:15-14:00

Systurnar Unnur Birna og Dagný Halla ólust upp í faðmi Eyjafjarðar en hafa fest rætur í reykvískri möl.
Ásamt kontrabassaleikaranum Leifi Gunnarssyni ætla þær að bjóða upp á dagskrá þar sem söngur, fiðla, gítar og kontrabassi mætast í skemmtilegu samspili. 

Þetta skemmtilega tríó mun flytja lög að norðan og sunnan, rifja upp sögur og leyfa tónlistinni að leiða okkur um landið þvert og endilangt.
Þetta verður notaleg stund í Borgarbókasafninu þar sem við förum bókstaflega út og suður, norður og niður! 

Fram koma: 
Unnur Birna Björnsdóttir
: Söngur og fiðla 

Dagný Halla Björnsdóttir: Söngur og gítar 

Leifur Gunnarsson: Kontrabassi 

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. 

Nánari upplýsingar
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Leifur Gunnarsson,
leifurgunnarsson@gmail.com | 868 9048