Þorvaldur Jónasson
Þorvaldur Jónasson

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
íslenska
Sýningar

Sýning | Svart og hvítt

Laugardagur 19. október 2024 - Laugardagur 23. nóvember 2024

Flest okkar þekkja mismunandi leturgerðir sem völ er á í tölvum, svo sem Helvetica, Arial, og Baskerville.  Leturgerðir eiga sér margar langa sögu og fyrir daga prentlistarinnar voru skrifarar mikilvæg stétt í samfélaginu. Þorvaldur Jónasson hefur í námi og starfi rannsakað og tileinkað sér  hinar ýmsu leturgerðir. Hann sýnir hér kallígrafíu og leturverk þar sem sjá má þróun leturgerðar allt frá tímum skömmu fyrir Krists burð til okkar daga. Tæpt er á sögulegum þáttum til glöggvunar. Á sýningunni eru enn fremur nokkrar teikningar sem hann hefur unnið á seinni árum.

Þorvaldur starfaði um langa hríð sem myndmennta- og skriftarkennari á höfuðborgarsvæðinu og hefur kennt ófáum Reykvíkingum að draga til stafs. Hann lauk kennaraprófi árið 1964 og síðar framhaldsnámi í Osló, þar sem hann nam skriftgrafík. Um árabil var Þorvaldur stundakennari við Kennaraháskólann og sinnti einnig fullorðinsfræðslu. Hann hefur einnig unnið við skrautritun og myndskreytingar fyrir ýmsa opinbera aðlia. Árið 2009 hlaut hann Íslensku menntaverðlaunin.

Sýningin stendur frá  19. október til  23. nóvember, hana má skoða á opnunartíma safnsins, mán-fim 10-18, fös 11-18 og lau 11-16.

Verið öll velkomin á opnun sýningarinnar, laugardaginn 19. otóber kl. 14.

Nánari upplýsingar veita: 
Þorvaldur Jónasson, myndmennta- og skrautritunarkennari
valdo42@outlook.com, s. 820 1942

Sigríður Stephensen, sérfræðingur
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is, s. 411 6230

 

 

Merki