
Um þennan viðburð
Sýning | Nútímalandslag
Vinsamlegast athugið að sýningin er lokuð á meðan á samkomubanni stendur.
Anna Snædís Sigmarsdóttir sýnir grafíkverk sem tengjast fagurfræði náttúrunnar. Hún lítur sér nær og sér hraun, mosa og villta náttúru.
Gróf línuleg áferð verkanna minnir á öflugt hraunrennsli, djúpar rispur vekja tilfinningu um kraft náttúrunnar. Anna Snædís notar mismunandi aðferðir grafíkur við vinnslu myndanna: ætingar, carbarondum og þurrnálsþrykk. Bókverkin á sýningunni eru unnin með blandaðri tækni, í þeim má sjá grafíkþrykk, teikningar og letur, verkin vísa bæði í náttúru og samfélag.
Verkin á sýningunni eru að hluta til þau sömu og sýnd voru á Munsterland Festival í Þýskalandi 2017, en þar komu saman listamenn úr norðri og suðri, frá Íslandi og Grikklandi og sýndu grafíkmyndir sínar. https://www.muensterland-festival.de/
Heimasíður Önnu: www.annasnedis.com, www.arkir.wordpress.com
Verið öll velkomin á opnunina, laugardaginn 22. febrúar kl. 14-16.
Sýninguna má skoða á opnunartíma safnsins, mán-fim kl. 10-19, fös 11-19, lau 12-16.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is