Liðnir viðburðir
Sýning | Inuit Qaujimajatuqangit
Þriðjudagur 11. október 2022 - Föstudagur 21. október 2022
Sýningin Inuit Qaujimajatuqangit er opnuð í tilefni af 75 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Kanada.
Um er að ræða farandsýningu sem ber yfirskriftina List, arkitektúr og hefðbundin þekking, en sýningin er afrakstur samkeppni sem haldin var meðal Inúíta á Inuit Nunangat svæðinu í Kanada, um listskreytingar fyrir nýju Kanadísku Norðurslóða Rannsóknarmiðstöðina (CHARS) í Ikaluktutiak í Kanada.
Sýningin samanstendur af fimmtíu verkum sem valin voru úr innsendum tillögum og unnin eru undir yfirskriftinni Tímalaus sköpunargleði Inúíta í fortíð og nútíð. Verkunum er ætlað að varpa ljósi á samband hefðbundinnar þekkingar Inúíta við tækni og vísindi heimsins í dag.
Verið öll velkomin!