Um þennan viðburð
Sýning | Hjartslættir
Hjörtu eru rauði þráðurinn í þessari sýningu.
Hjartans mál eru stóru málin en líka lítil augnablik milli ástvina. Hjörtu eru rómantísk en geta líka verið hrollvekjandi. Hjörtu tákna ástina en líka líf og dauða. Hjörtu slá í takt, hjúkrunarfræðingur mælir blóðþrýstinginn og hjartaknúsarinn gefur þér bangsa á valentínusardaginn.
Sýningin er hluti af listahátíðinni List án landamæra en listahátíðin beinir sviðsljósi að fötluðu listafólki, til þess að auka sýnileika þess, fjölbreytileika og skapa tengsl í íslensku menningarlífi.
SÝNENDUR
Vigdís Sigurlaug Kjartansdóttir
Jóna Lára Ármannsdóttir
Þorbjörg Ester Finnsdóttir
Ásta Olsen
Ingiríður Halldórsdóttir
Pálína Erlendsdóttir
AÐGENGI:
Aðgengi er GRÆNT. Sýningin er á jarðhæð, það er engir þröskuldar við innganginn, það er aðgengilegt salerni á jarðhæðinni og lyfta upp á aðra hæð. Það er blátt bílastæði við innganginn.
Sjá nánari upplýsingar um aðgengi.
Viðburðurinn á facebook
Nánari upplýsingar veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Borgarbókasafninu Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170