
Um þennan viðburð
Sýning | Endurtekning
Á sýningunni eru ljósmyndir eftir Emilíu Sigrúnu Karlsdóttur og voru þær lokaverkefni í ljósmyndaáfanga í Menntaskólanum á Tröllaskaga vorið 2025.
Hugmyndin að baki þeim er nokkuð persónuleg en í þeim endurskapar hún gömul málverk föður síns af fjölskyldu og vinum. Hún valdi nokkur verk úr safninu og vann svo áfram með þau.
,,Síðan valdi ég föt á fyrirsæturnar en auðvitað var ekki hægt að nota nákvæmlega sömu föt og hluti og þegar myndirnar voru málaðar t.d. var ekki auðvelt að herma eftir málverki af pabba með mig nýfædda svo ég varð að láta dúkku í staðinn. Ég stillti svo upp og tók tíma í að finna réttu stellingarnar og svipina til þess að líkjast fyrirmyndinni að mestu leyti en það er mikilvægt að það sé ekki alveg eins því að það er ekki hægt þegar viðfangsefnið hefur útlitslega breyst í gegnum árin.“
Emilía Sigrún er 24 ára Kópavogsbúi og er að ljúka stúdentsprófi um þessar mundir. Hún er alin upp við myndlist þar sem faðir hennar er myndlistarmaður og því vön að hafa allskonar fólk á veggjunum heima sér. Frá barnæsku hefur hún verið módel í myndunum föður síns, bæði í myndskreytingum bóka og málverkum. Hún er því vön að klæða sig í mismunandi búninga og setja aðstæður á svið. Núna má segja að hlutverk hennar hafi snúist við, að þessu sinni er hún skaparinn.
Nánari upplýsingar
Emilía Sigrún Karlsdóttir
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Árbæ
katrin.gudmundsdottir@reykjavík.is