Dreggjar II, Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir, Soffía Sæmundsdóttir
Dreggjar II, Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir, Soffía Sæmundsdóttir

Um þennan viðburð

Tími
17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Sýningar

Sýning | Dreggjar II

Miðvikudagur 15. júlí 2020 - Föstudagur 28. ágúst 2020

 

Föstudaginn 28. ágúst kl. 16-18 ætla þær Ásta og Soffía að vera á staðnum og spjalla við gesti. Verið velkomin!

Nægt rými, spritt og hanskar á staðnum. 

 

Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir og Soffía Sæmundsdóttir sýna textílverk, málverk og teikningar.

"Að fara að heiman og koma sér fyrir á nýjum stað þar sem allt er ókunnugt hreyfir við hugsuninni og opnar á nýja hluti. Rýmið sem skapast virðist stórt og mikið pláss og frelsi. En hvað kemur þá? Hvað situr eftir?"

Sýningin er afrakstur mánaðardvalar tveggja listakvenna frá Íslandi á gestavinnustofu í Düsseldorf í Þýskalandi.

Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir er listakona og hönnuður. Verk hennar jafnt í hönnun sem listsköpun eru gjarnan undir áhrifum frá veðráttu og náttúru. Þau eru full af andstæðum líkt og íslensk náttúra, eins og kraftmikill stormur eða draumkennt íslenskt landslag. www.astaclothes.is

Soffía Sæmundsdóttir hefur verið virk á myndlistarvettvangi undanfarinn áratug. Soffía er einkum kunn af málverkum sínum, en vinnur einnig teikningar og grafík og sækir innblástur í náttúru og landslag og veltir fyrir sér sambandi manneskjunnar við það. http://soffia-malarinn.blogspot.com/

Verið öll velkomin á opnun sýningarinnar, miðvikudaginn 15. júlí kl. 17!

Sjá opnunartíma safnsins...

Nánari upplýsingar:
Sigríður Stephenesen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is