Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Sýningar

Stofan | A Public Living Room - Anna W.

Þriðjudagur 31. maí 2022 - Mánudagur 6. júní 2022

Anna Wojtyńska skapar maíútgáfu Stofunnar á bókasafninu í Grófinni.
Stofan er hennar persónulega útgáfa af samfélagsrými.
Opnun rýmisins hefst með samtali 31. maí  kl. 17
um 
skapandi þátttökumiðaðar aðferðir til að opna aðgengi að tungumáli.

Mig langar að hvetja fólk til að hugsa um þátttöku og aðgengi allra að samfélaginu, mig langar að vekja tilfinningu opnunar, að standa við samfélag sem hægt væri að ganga inn í. Með því að taka þátt í menningarlífi og öðrum samfélagstengdum þáttum, er auðveldara að tengjast tungumálinu. Mig langar til að skoða hvernig við getum aukið þátttöku innflytjenda í samfélaginu. Samtalið sem ég mun hefja í Stofunni er við fólk sem hefur notað listræna aðferðarfræði sem auðveldar fólki að tengjast, eins og með tónlist og hreyfingu og öðrum listrænum formum.

Innsetning á Facebook.

Rýmið er opið öllum og hægt er að hlusta á upphafsamtal Önnu frá opnuninni 31. maí.

Stofan | A Public Living Room
Stofan er tímabundið samfélagsrými sem sett er upp mánaðarlega af ólíkum notendum með mismunandi hugmyndir um hvernig þeim langar að nota bókasafnið væri það þeirra eigin almenningsstofa. Hver skapar nýjan og óvæntan stað inni á safninu og hefur einhverskonar samtal í rýminu. Gestum og gangandi er boðið að tilla sér niður í rýminu og hver veit nema úr verði gefandi samtal við næsta mann? Meira um tilraunaverkefnið Stofan | A Public Living Room 

Frekari upplýsingar
Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaralega þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is