Lyktarsafnið

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Sýningar

Stofan | Lyktarsafnið

Mánudagur 12. febrúar 2024 - Sunnudagur 25. febrúar 2024

Gætum við aukið skynbragðið með því að skynja betur? Hvaða minningar og þekking vakna við að finna ákveðna lykt? Hvernig öðlumst við betri skilning með skynfærunum? Juan Camilo vinnur með lyktir og áferðir í Lyktarsafninu sem leiða þig um króka og kima hugans. Hér getur þú hlúið að skynfærunum. 

Upplifunarrýmið er opið og aðgengilegt öllum á opnunartímum bókasafnsins.

Opnunarviðburður er 12. febrúar kl. 16:30

Vinnustofa með Juan Camilo er 25. febrúar kl. 15:00

Lyktarsafnið er staðsett í myndasögudeildinni á 5. hæð í Grófarhúsi frá 12.-25. febrúar 2024.

Lyktarsafnið er tímabundinn staður Juan Camilo á bókasafninu og er hluti af verkefninu  Stofan | A Public Living Room

Einu sinni í mánuði er ný útgáfa af Stofu opnuð í takt við leiðandi stef verkefnisins -  Share the Care. Stofan er tilraunaverkefni þar sem ólíkir samstarfsaðilar skapa styðjandi samfélagsrými sem þau vilja sjá á bókasafninu.   

Frekari upplýsingar veitir: 
Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka 
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is