Perlverk eftir Eirík Boga af Harry Potter
Harry Potter í svart hvítu

Um þennan viðburð

Tími
16:00
Verð
Frítt
Sýningar

Perlheimur Harrys Potters | Sýning

Föstudagur 8. desember 2023 - Sunnudagur 3. mars 2024

Að þessu sinni eru perluverk á sýningarveggnum í Árbænum.

Verkin eru unnin af Eiríki Boga Guðnasyni nemanda í Menntaskólanum í Kópavogi.

Eiríkur hefur unnið ýmis störf meðfram náminu s.s. í verslun og á lager.

Viðfangsefni Eiríks á sýningunni eru brjóstmyndir í svarthvítu af aðalpersónum í Harry Potter. Nokkrar aukapersónur og vinir Harrys Potters fá þó að fljóta með.

Eiríkur hefur perlað árum saman og þá oft persónur úr myndasögum sem hann les gjarnan. Í byrjun perlaði hann myndir í venjulegri stærð en síðustu fimm árin eða svo hefur hann einbeitt sér að stórum perluverkum.

 

Nánari upplýsingar: 
Katrín Guðmundsdóttir 
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is 
S.411 6250