Teikning eftir Kristínu Ómarsdóttur

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Sýningar

Myndlistarsýning | SJÁÐU FEGURÐ ÞÍNA

Fimmtudagur 26. október 2023 - Þriðjudagur 28. nóvember 2023


Vegna vatnstjóns sem varð í nærliggjandi rýmum í Gerðubergi aðfaranótt 24. október, var tekin sú ákvörðun að taka sýninguna niður, en hún átti að standa fram til áramóta. Þriðjudagurinn 28. nóvember er síðasti sýningardagur og verður hún tekin niður eftir klukkan 18.

Ekkert tjón varð á verkum Kristínar, en vissara þykir að fjarlægja verkin, sem unnin eru á pappír. 
 


Myndlistarsýningin, Sjáðu fegurð þína, var opnuð í sýningarsal Borgarbókasafnsins Gerðubergi fimmtudaginn 26. október. Um er að ræða fyrstu einkasýningu með myndverkum Kristínar Ómarsdóttur, rithöfundar, ljóð- og leikskálds.

Sýningin er upptaktur að ritþingi um skáldskap og listferil Kristínar, sem haldið var laugardaginn 28. október 2023 í Tjarnarbíói í Reykjavík á vegum Borgarbókasafnsins. 

Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík. Hún hefur skrifað innan ólíkra bókmenntategunda allt frá árinu 1985; ljóð, leikrit, skáldsögur, smásögur og býr yfir einstakri skáldskaparrödd, hefur verið afkastamikil á sínu sviði og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Fantasía skáldverka Kristínar hefur rætur líkt og tré í jörðu, áþreifanleg og djúphugul staðreynd sem allt vex af, lifir, elskar og deyr - og raunveruleiki mannanna lekur eins og segir í skáldsögunni Svanafólkið (2019). Fyrsta verk hennar, leikritið Draumar á hvolfi (1985) hlaut fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni Þjóðleikhússins, leikrit hennar, Ástarsaga 3 (1997) var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna og skáldsagan Elskan mín ég dey (1997) var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999. Þá hlaut Kristín Viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins 1997. Árið 2005 fékk hún Grímuverðlaunin sem leikskáld ársins fyrir leikritið Segðu mér allt. Fyrir ljóðabókina Sjáðu fegurð þína hlaut hún Fjöruverðlaunin árið 2008. Hún hefur fengið fjölda tilnefninga til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, m.a. fyrir ljóðabókina kóngulær í sýningargluggum (2017), sem hún einnig hlaut ljóðabókaverðlaunin Maístjörnuna fyrir og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Kristín hefur einnig unnið að myndlist, sýnt teikningar og tekið þátt í sýningum. Skáldverk Kristínar Ómarsdóttur hafa verið þýdd á sænsku, dönsku, frönsku, finnsku, ensku. Árið 2018 var Waitress in Fall valin besta ljóðabók ársins hjá The Sunday Times. Á síðasta ári 2022 var skáldsagan Svanafólkið/Swanfolk útgefin á ensku í Bretlandi og Bandaríkjunum. Kristín hefur numið rússnesku, íslensku og bókmenntir við Háskóla Íslands og spænsku sem annað mál við Háskólann í Barcelona.


Á myndlistarsýningunni gefur að líta myndverk Kristínar sem spanna nokkra áratuga skeið og gefa innsýn inn í fagurfræði hennar og skáldskaparheim.

Sýningin er einstök að því leyti að vera fyrsta einkasýning Kristínar sem þó hefur unnið að myndverkum sínum allan sinn feril og á því orðið stórt safn tví- og þrívíðra verka sem aldrei hafa komið fyrir sjónir almennings. Kristín nálgast myndsköpun sína á persónulegan máta, eru myndverk hennar samofin bæði skáldskapnum og einkalífi hennar sjálfrar. Sýningin skapar ný tækifæri til að kynnast höfundarverki skáldsins og henni sjálfri á forsendum myndlistar, en verkin búa yfir einstökum töfrum þess að vera sköpuð af persónulegri tjáningarþörf án þess að hafa sýningu sem útgangspunkt.

Sýningin er opin á opnunartíma Borgarbókasafnsins Gerðubergi.

Stjórnandi ritþingsins var Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur, höfundur og fyrrum útgáfustjóri, um sýningarstjórn myndlistarsýningar sér Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, myndlistarmaður. Spyrlar ásamt stjórnanda voru Jórunn Sigurðardóttir, dagskrágerðarkona og leikari, og Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor í íslenskum samtímabókmenntum.

Umfjöllun um sýningu Kristínar – Smelltu hér til að opna í nýjum glugga.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115

Bækur og annað efni