Melanie Ubaldo í Inclusive Public Spaces

Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Sýningar

Melanie Ubaldo | What are you doing in Iceland with your face?

Föstudagur 12. júní 2020 - Föstudagur 19. júní 2020

Melanie Ubaldo sýnir textílverk sitt “What are you doing in Iceland with your face?” á Borgarbókasafninu í Grófinni.

Sýning verksins er hluti af verkefninu Inclusive Public Spaces og verður notendum safnsins til sýnis á opnunartíma safnsins fram að 19. júní 2020

 

Opnun verksins er á föstudaginn 12. júní í Grófinni kl. 17:00. Öll velkomin.

 

Texti frá listakonunni Melanie Ubaldo:

Not to be rude but...what are you doing in Iceland with your face? 

(Exasperated sigh)

 

Melanie Ubaldo (f. 1992) útskrifaðist með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Í verkum Melanie er myndefni og texti órjúfanleg heild. Sjá má sundurleit málverk sem innihalda texta sem minnir helst á veggjakrot. Textinn vísar í hennar eigin reynslu af fordómafullri hegðun annarra í hennar garð. Verkin afhjúpa valdið sem felst í fordómum og eyðandi áhrif þeirra á þolendur. Melanie hefur áður sýnt í Kling og Bang og hefur tekið þátt í öðrum hópsýningum hérlendis og erlendis til að mynda í Hafnarborg, Gerðarsafni, hátíðinni Cycle – Music and Art festival og nýlega í Pavilion Nordico í Argentínu. Jafnframt er verk hennar að finna í safneign Listasafns Reykjavíkur.

 

Upplýsingar um viðburðinn veitir: Hubert Gromny  

Tenglar

Vefsíða Melanie Ubaldo

Viðburður á Facebook

 

Frekari upplýsingar um verkefnið Inclusive Public Spaces má finna á ensku síðu Borgarbókasafnsins: Inclusive Public Spaces