pillow talk in the library

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Sýningar

Koddahjal - Endurhlaða | Innsetning

Fimmtudagur 10. júní 2021 - Fimmtudagur 24. júní 2021

Koddahjal - Endurhlaða eftir Sonju Kovačević er innsetning sem gefur áhorfandanum innsýn í lif hælisleitenda og flóttamanna á Íslandi.

Framsetningin er einföld; hátalarar hafa verið settir á samanbrjótanlega bedda, eins og notaðir eru sem rúm fyrir hælisleitendur og úr hátölurum heyrast síðan fjölmargar ólíkar frásagnir.

emergency red cross bed with banner

Áhorfandanum býðst að leggjast niður og hlusta. Frásagnirnar hafa verið settar saman af kostgæfni með það í huga til að veita innsýn í líf manneskjunnar sem þær lýsa, og til að gefa áhorfendanum færi á að tengjast „sögu flóttamanns“ á nýstárlegan  hátt. Koddahjal var sýnt á Listahátíð í Reykjavík árið 2018. Verkið hefur verið lagað að Borgarbókasafninu Grófinni og samfara því verður haldin vinnustofa, en hún er hugsuð er til að kveikja umræður um efnið, sem sannarlega á enn erindi við samtímann.

Sonja Kovačević er austurískur leikhúsframleiðandi sem búsett er á Íslandi. Inn í verk  hennar fléttast áhugi á að skoða mikilvæg umræðuefni í samtímanum og á að skapa leikhús sem brúar bilið milli kenninganna og framsetningarinnar. Upp úr þessari blöndu verður oft til vinna með jaðarsettum hópum í samfélaginu.

sonja kovacevic

Sonja mun einnig leiða vinnustofu sem haldin verður um menningarnæmi. Vinnustofan verður haldin á ensku og íslensku og allir eru velkomnir að taka þátt!

Koddahjal – Endurhlaða er á ensku

Viðburður á Facebook

Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, Sérfræðingur - Fjölmenningarmál 
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is