Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Sýningar

Einkasýning Prins Póló | Hvernig ertu?

Laugardagur 28. maí 2022 - Sunnudagur 28. ágúst 2022

Svavar Pétur Eysteinsson leggur undir sig Borgarbókasafnið Gerðubergi og sýnir ljósmyndir, prentverk, vídeóverk og skúlptúr.

Svavar Pétur Eysteinsson sýnir ljósmyndir, prentverk, vídeóverk og skúlptúr á Borgarbókasafninu Gerðubergi. Á sýningunni blandar Svavar saman eigin tónverkum, myndlist og ljósmyndum, en samhliða undirbúnings á sýningunni vann Svavar að hljómplötunni Hvernig ertu? sem kom út á opnunardegi sýningarinnar.

Svavar er flestum kunnur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló, en hann er jafnframt grafískur hönnuður og ljósmyndari. Hann vinnur texta, tónlist og myndræna framsetningu jöfnum höndum, en í verkum sínum sækir Prinsinn oft innblástur í "sjoppulegan" hversdagsleikann, með litríkri upphafningu og húmor.

Svavar Pétur er alinn upp í Breiðholtinu og því er mikill fengur fyrir Borgarbókasafnið að fá tækifæri til að sýna verk Svavars sumarið 2022.  Búast má við ýmsum viðburðum í tengslum við sýninguna sem kynntir verða síðar. 

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri
Borgarbókasafnið Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is 

Merki