Lyktarsafnið

Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 17:00
Verð
Frítt
Spjall og umræður

Stofan | Lyktarsafnið - Vinnustofa

Sunnudagur 25. febrúar 2024

Lyktarsafnið er upplifunarrými  þar sem við aukum skynbragðið. Hvaða minningar og þekking vakna við að finna ákveðna lykt? Hvernig öðlumst við betri skilning með skynfærunum? Juan Camilo leiðir opna vinnustofu þar sem hlúið er að skynfærunum. Hann vinnur með lyktir, hreyfingar og áferðir sem leiða þig um króka og kima hugans.

Viðburður á Facebook

Öll velkomin, þátttaka ókeypis

Lyktarsafnið er tímabundinn staður Juan Camilo á fimmtu hæð á Borgarbókasafninu Grófinni og er hluti af verkefninu  Stofan | A Public Living Room. Einu sinni í mánuði er ný útgáfa af Stofu opnuð í takt við leiðandi stef verkefnisins -  Share the Care. Stofan er tilraunaverkefni þar sem ólíkir samstarfsaðilar skapa styðjandi samfélagsrými sem þau vilja sjá á bókasafninu.   

Frekari upplýsingar veitir: 
Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka 
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is