Oslóartréð í nýju ljósi
Sjálfbærari samfélög kalla á breyttar hefðir og venjur. Hvernig tökum við upp nýja siði og hverjir taka þátt í að móta þá þróun? Geta bókasöfnin verið vettvangurinn til að þróa nýjar venjur og efla tengsl milli ólíkra samfélagshópa?
Vinaborgirnar Osló og Reykjavík styrkja tengslin með því að tendra saman Oslóartréð, sem nú kemur úr Heiðmörk en ekki frá Osló. Tréð sem áður var gefið hefur breyst í bókagjöf til skólabókasafna. Sjálfbærnis sjónarmið réðu þessari breytingu. Eru aðrir siðir sem ættu einnig að taka breytingum af sömu ástæðum?
Við bjóðum í opna umræðu um sjálfbærari venjur á vettvangi bókasafnsins.
Þátttakendur í umræðunni eru:
Knut Skansen, borgarbókavörður í Deichman bókasafni Oslóar
Pálína Magnúsdóttir, Borgarbókavörður
Hallstein Bjercke, kjörinn fulltrúi í borgarstjórn Oslóar
Skúli Helgason, formaður Menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs
Umræðurnar fara fram á ensku
Öll velkomin, þátttaka ókeypis
Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Norska sendiráðið.
Frekari upplýsingar
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is