Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 12:00
Verð
Frítt
Spjall og umræður

Opið samtal | Eflum læsi - Lesum saman

Mánudagur 11. mars 2024

Mikilvægi læsis barna og áhrif þess á tækifæri og lífsgæði eru óumdeild. Lesskiln­ingur íslenskra barna hef­ur verið á niður­leið und­an­far­inn ára­tug, en lækk­ar mest í mælingum nýj­ustu PISA-könn­un­ar. 

Mennta- og barnamálaráðuneytið telur að verkefnið framundan sé að samtök, stjórnvöld og sveitarfélög vinni saman og finni leiðir til að bregðast við.  En hvernig er best að standa að því og er aðgengi minni félagasamtaka að slíku samstarfi opið? 

Við bjóðum í Opið samtal með Noemí Cubas stofnanda og verkefnastjóra Lesum saman sem sækist eftir samstarfi við stjórnvöld og sveitarfélög um allt land. Markmið verkefnisins er að efla félagsleg tengsl og læsi barna sem hafa íslensku ekki að móðurmáli. Hverjar eru helstu áskoranir slíks verkefnis? Hvaða hagaðila er best að tengja við og hvaða hlutverk gæti bókasafnið tekið í slíkri samvinnu?

Viðburður á Facebook 

Öll velkomin, þátttaka ókeypis 

Upplýsingar um Lesum saman veitir 
Noemí Cubas 
Stofnandi og verkefnastjóri
lesumsaman@gmail.com 

Frekari upplýsingar um Opið samtal veitir: 
Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka 
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is