Málþing | Vettvangur samsköpunar
Hvernig má virkja samfélagsrými svo fólk úr öllum áttum geti mæst? Að lokinni hringferð um landið þar sem stoppað var á á bókasöfnum, listasöfnum, menningarsetrum og aðsetrum listamanna þá komum við saman í Grófinni. Samstarfsaðilar verkefnisins Vettvangur samsköpunar deila sinni reynslu af því að beita skapandi aðferðafræði til að vinna gegn jaðarsetningu innflytjenda og efla borgaralega þátttöku þvert á samfélagið.
Samfélög eru í stöðugri þróun og í hverju og einu þeirra er þörf á stað þar sem fólk mætist til að takast á við breytta tíma og breytinga í samsetningu samfélagsins. Hvar eru þessir staðir í dag? Hvernig þróum við færni okkar til að tengjast og verða hluti af samfélagi?
Á málþinginu fáum við einstaka innsýn í þróun bókasafna og annarra menningarstofnana í dreifbýli og þéttbýli til að mæta breyttum tímum og hvernig slíkar stofnanir og almenningsrými geta átt hlut í að tengja saman hópa og opna fleirum möguleika á að taka þátt í samfélaginu.
Samstarfsaðilar málþingsins á Borgabókasafninu eru:
Amtsbókasafn Akureyri
Blábankinn á Þingeyri
Bókasafn Héraðsbúa á Egilsstöðum
Bókasafn Húsavíkur
Bókasafn Ísafjarnar
Héraðsbókasafn Rangæinga á Hvolsvelli)
Hversdagssafn á Ísafirði
Westfjord Residency á Þingeyri
Sláturhúsið á Egilsstöðum
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði og Byggðarannsóknasjóði.
Frekari upplýsingar um viðburðinn og verkefnið Vettvangur samsköpunar
Lara Hoffmann
Verkefnastjóri og rannsakandi
laraw@unak.is