Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Tungumál
íslenska
Spjall og umræður

Leikhúskaffi | Höfundaspjall: Þór Tulinius og Katrín Lóa Hafsteinsdóttir

Mánudagur 2. febrúar 2026

Þór Tulinius og Katrín Lóa Hafsteinsdóttir mæta í leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Grófinni og ræða skrif í íslensku leikhúsi.

Þór og Katrín Lóa eru um margt ólíkir höfundar og verkin þeirra tvö Bústaðurinn og Mergur, sem sýnd eru í Tjarnarbíó, gjörólík. Annað tragíkómískt drama í sumarbústað og hitt gróteskt kórverk um leyndardóma líkamans.

Hvaðan kemur innblásturinn, hvar byrjar maður á leikverki og hvernig leikrit og leikhús vantar á Íslandi?

Þetta ætla Þór og Katrín Lóa að ræða í leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Grófinni.

Boðið verður upp á heitt kaffi og söng.

Öll hjartanlega velkomin.

Um verkin tvö:

Bústaðurinn er nýtt leikrit eftir Þór Tulinius, sem fjallar á hugvitsamlegan hátt um innflytjenda-ótta. Sami leikhópur vann barnasýningu ársins á Grímunni 2024, en er nú með tragíkómedíu um eldri hjón í sumarbústað sem fá aðkomumann í heimsókn.

 Í Merg eftir Katrín Lóu Hafsteinsdóttur er kórsöngur settur í óvænt samhengi og andstæðum teflt saman. Líkamsstarfsemin er tekin fyrir á nærgöngulan, fáránlegan og jafnframt hlægilegan hátt og skömmin sem henni fylgir er krufin til mergjar.

Viðburður á Facebbok

Nánari upplýsingar veitir:

Snæbjörn Brynjarsson
snaebjorn@tjarnarbio.is