
Um þennan viðburð
Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Spjall og umræður
Hver er að telja? | Ungmenni sem kunna að telja
Miðvikudagur 5. febrúar 2025
Hagstofa Íslands kynnir verkefnið Greindu betur og ræðir hvernig efla má upplýsingalæsi ungmenna.
Gagna- og upplýsingalæsi er sífellt að verða mikilvægari færni samfara aukinni upplýsingaóreiðu og falsfréttum á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum almennt. Ljóst er að til þess að stemma stigu við þessum áskorunum þurfa þær stofnanir sem hafa það hlutverk þjálfa skilning á áreiðanlegum upplýsingum um hagfélagsleg málefni að taka höndum saman.
Öll velkomin og þátttaka ókeypis.
Hver er að telja? er viðburðaröð Hagstofu Íslands og Borgarbókasafnsins um gagnalæsi og miðlunarleiðir í anda Greindu betur.
Nánari upplýsingar veitir:
Arndís Vilhjálmsdóttir
greindubetur@hagstofa.is