Heimspekisamtal

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Tungumál
Íslenska
Spjall og umræður

Heimspekisamtal | Slaufun og réttlæti

Miðvikudagur 6. nóvember 2024

Er slaufun réttlátt viðbragð við óviðeigandi hegðun eða þegar einhver hefur verið beittur órétti? 

Taktu þátt í opnu samtali um slaufun og réttlæti með heimspekinemum við HÍ þar sem þau flétta saman heimspekihugleiðingum við efni samtalsins.  

Öll velkomin, þátttaka ókeypis

Viðburður á Facebook

Heimspekisamtal er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og nemenda heimspekinámskeiðsins "Stjórnmál og samfélag" við HÍ þar sem þau undirbúa Opið samtal um formleg réttlætiskerfi og vald, og svo kapítalisma og gildi þess sem er ómælanlegt í okkar samfélagi eins og náttúrulegt umhverfi og tengsl.

Fjögur samtöl fara fram í nóvember í Grófinni og eru þau opin öllum áhugasömum: 

Miðvikudag 06.11.2024 - Slaufun og réttlæti  
Föstudag 08.11.2024 - Borgaraleg óhlýðni 
Miðvikudag 13.11.2024 - Náttúran og samfélag 
Föstudag 15.11.2024 - Tækni og samfélag  

Opið samtal á Borgarbókasafninu er umræðuvettvangur þar sem við ræðum saman brennandi málefni á jafningjagrundvelli, með það að markmiði að finna svörin saman, koma málum í farveg og að ólík sjónarmið fái að heyrast. 

Frekari upplýsingar veitir
Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka 
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is