Final Cut Pro young person workstation smásmiðja
Final Cut Pro young person workstation smásmiðja

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Aldur
13+
Tungumál
Íslenska og enska
Skapandi tækni
Tónlist
Ungmenni

Smásmiðja | Grunnatriði í vídeóforritinu Final Cut Pro

Mánudagur 17. mars 2025

Lærum að klippa og búa til myndbönd í Final Cut Pro! 

Final Cut Pro er öflugt myndvinnsluforrit fyrir myndbandagerð. Í þessari Smásmiðju kynnumst við því helsta sem forritið hefur upp á að bjóða, lærum að klippa og vinna myndefni á auðveldan hátt. Eftir vinnustofuna gefst tími til að sinna eigin verkefni með aðstoð frá starfsfólki. 

Á Verkstæðinu er ókeypis aðgengi að Final Cut Pro forritinu og mörgum fleiri skapandi forritum. Komdu í Smásmiðjuna eða bókaðu tölvu og lærðu upp á eigin spýtur

smásmiðjur í skapandi tækni – annan hvern mánudag hjá Borgarbókasafninu Grófinni

Smásmiðjur | Opnir aðstoðartímar á Verkstæðinu Grófinni

Í Smásmiðjunum lærum við allt milli himins og jarðar sem tengist skapandi tækni og tölvuvinnslu. Á Verkstæðinu eru fullbúnar tölvur með öllum helstu forritum fyrir myndvinnslu, tónlistarsköpun eða hljóðvinnslu og tilvalið að mæta í Smásmiðjurnar fyrir þau sem langar að læra á forritin og nýta sér búnaðinn.

Við kynnumst einhverju nýju í Smásmiðjunum annan hvern mánudag frá kl. 16:30–17:30. Eftir tímann verður starfsfólk til staðar til að aðstoða með hvað sem er til kl. 18:00.

Engin skráning, bara mæta!

 

Nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Gestsson, sérfræðingur Tónlistardeildar
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100