
Um þennan viðburð
Smásmiðja | Að taka upp með grænskjá í Final Cut Pro
Lærum að nota grænskjá með Final Cut Pro!
Að nota grænskjá er mjög áhrifarík og skemmtileg tækni í myndbandagerð. Í þessari Smásmiðju lærum við að nota grænskjáinn (green screen) á Verkstæðinu í Grófinni með hjálp myndvinnsluforritsins Final Cut Pro. Þátttakendur taka upp einfalt myndband með grænum bakgrunn og skipta svo græna litnum út fyrir í bakgrunn að eigin vali! Eftir vinnustofuna gefst tími til að vinna að eigin verkefni með aðstoð frá starfsfólkinu á staðnum.
Á Verkstæðinu er ókeypis aðgengi að grænskjá, Final Cut Pro forritinu og mörgum fleiri skapandi forritum. Komdu í Smásmiðjuna eða bókaðu grænskjáatölvu og lærðu upp á eigin spýtur!
Smásmiðjur | Opnir aðstoðartímar á Verkstæðinu Grófinni
Í Smásmiðjunum lærum við allt milli himins og jarðar sem tengist skapandi tækni og tölvuvinnslu. Á Verkstæðinu eru fullbúnar tölvur með öllum helstu forritum fyrir myndvinnslu, tónlistarsköpun eða hljóðvinnslu og tilvalið að mæta í Smásmiðjurnar fyrir þau sem langar að læra á forritin og nýta sér búnaðinn.
Við kynnumst einhverju nýju í Smásmiðjunum annan hvern mánudag frá kl. 16:30–17:30. Eftir tímann verður starfsfólk til staðar til að aðstoða með hvað sem er til kl. 18:00.
Engin skráning, bara mæta!
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson, sérfræðingur Tónlistardeildar
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100