Jazz í hádeginu - Leifur Gunnarsson
Jazz í hádeginu - Leifur Gunnarsson

Um þennan viðburð

Tími
13:00
Verð
Frítt
Staður
Facebook
Hópur
Fyrir öll
Netviðburðir
Tónlist

Netviðburður | Beint á ská: Tónn úr tómi - Jazztónleikar

Föstudagur 4. desember 2020 - Fimmtudagur 31. desember 2020

Við bjóðum þér og þínum á tónleika á Facebook!

Beint á ská er tónleikaröð sem Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari stendur fyrir í samvinnu við Borgarbókasafnið og Tónlistarsjóð. Tónleikarnir eru sjálfstætt framhald af tónleikaröðinni Jazz í hádeginu sem notið hefur mikilla vinsælda.

Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikar, Snorri Sigurðsson trompet- og flygilhorn, Scott McLemore slagverksleikari og Leifur Gunnarsson á kontrabassaleikari flytja okkur lög af plötunni Tónn úr tómi sem Leifur gaf út fyrr á þessu ári. Hér er viðburðurinn á Facebook.

Í hverjum mánuði stendur safnið fyrir tónlistartengdum viðburðum, bæði fyrir börn og fullorðna. Safnið er orðið fastur viðkomustaður fyrir jazzunnendur í Reykjavík, enda haldið tónleikaröðinni Jazz í hádeginu gangandi í 5 ár í samvinnu við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara.

Nú þegar atvinnuöryggi tónlistarflytjenda er ótryggt langar okkur að standa fyrir einskonar sérútgáfu af hádegisjazzinum. Hér viljum við nýta það góða og rótgróna starf sem við búum að og nýjustu tækni í miðlun til að koma viðburðum til skila, ekki bara til fastagesta safnsins heldur til allra Íslendinga.

Þetta verkefni er sett af stað sem atvinnuskapandi verkefni fyrir listafólk vegna Covid 19.

Nánar um tónlistarfólkið:
Sunna Gunnlaugsdóttir
Snorri Sigurðsson
Scott McLemore  
Leifur Gunnarsson

Nánari upplýsingar:
Leifur Gunnarsson: 8689048
leifurgunnarsson@gmail.com

Hólmfríður Ólafsdóttir: 8681851
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is