
Um þennan viðburð
Tími
08:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Markaður
FRÍBÚÐ | Skiptumst á sparifötum
Mánudagur 24. nóvember 2025 - Þriðjudagur 23. desember 2025
Vantar þig ný spariföt eða ertu með fullan fataskáp af fallegum flíkum sem þú ert ekki lengur að nota?
Kíktu við í Fríbúðinni þar sem hægt verður að skiptast á spari- og hátíðarfötum í desember.
Reglur fatamarkaðarins eru eftirfarandi:
- Öll föt skulu vera hrein og í nothæfu ástandi
- Hengið föt á herðartré eða raðið snyrtilega á borðið
- Föt mega eingöngu fara á afmarkað rými innan Fríbúðarinnar
- Sýnum hvert öðru virðingu
- Göngum vel um
Sett verður upp tímabundin fataslá í Fríbúðinni þar sem hægt er að hengja upp spariföt, hátíðarpeysur, hálstau og fleira fínt. Það sem einn hefur ekki lengur not fyrir getur verið algjör happafengur fyrir annan.
Viltu vita meira um Fríbúðina?
Fylgdu Fríbúðinni á Instagram!
Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6175