Um þennan viðburð

Tími
11:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Markaður

Búningaskiptimarkaður

Mánudagur 9. febrúar 2026 - Miðvikudagur 18. febrúar 2026

Vantar búning fyrir öskudaginn eða eru skápar fullir að gömlum búningum sem ekki er verið að nota? 

Við ætlum að bjóða upp á búningaskiptimarkað á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal í ár!

Það verður fataslá frammi á safninu þar sem hægt er að koma með búninga og velja búning sem ykkur líst vel á. Það er velkomið að taka sér búning án þess að koma með annan í staðinn og eins má gefa búninga án þess að taka aðra af slánni.    

Allir búningar verða að vera hreinir og í nothæfu ástandi. 

Viðburður á Facebook.

 

Nánari upplýsingar veitir:  

Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir   
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is