VV sögur
Döff bókmenntir eru í sviðsljósinu. Við sýnum VV sögur sem skapaðar voru af þátttakendum í verkefninu VV-sögur.
VV sögur (e. visual vernacular) eru einkennandi fyrir döff menningu. Þær byggja á látbrigðum, látbragði og persónusköpun sem er skiljanlegar þvert á táknmál heimsins.
VV-sögur er samstarfsverkefni Ós Pressunnar, Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar þar sem döff einstaklingar læra mismunandi aðferðir til þess að semja sína VV sögu.
Tvö námskeið voru haldin í maí. Sýndar verða þær VV sögur sem þar urðu á Torginu á 1, hæð í Grófinni. Þriðja og síðasta námskeiðið er áætlað að verði í ágúst og er opið öllum sem tala íslenskt táknmál og vilja læra mismunandi aðferðir við það að búa til VV sögur.
Viðburðirnir fara fram á íslensku og íslensku táknmáli.
Öll velkomin og þátttaka ókeypis
Nánari upplýsingar
Anna Valdís Kro, verkefnastýra VV-Sögur
avkro1978@gmail.com
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði og viðburðirnir hlutu styrk úr Viðburðapotti Sumarborgarinnar 2022.