Um þennan viðburð

Tími
17:15 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir

Vísindakaffi | Menntun og umbun í fátækrahverfum

Fimmtudagur 16. febrúar 2023

Styrktarfélagið Broskallar hverfist í kringum kennslukerfi í raunvísindum sem vísindamenn við Háskóla Íslands hafa þróað. Fyrir tilstilli styrktarfélagsins, bakhjarla þess og kennslukerfisins gátu nemendur í Kenía m.a. sótt sér menntun þrátt fyrir að skólum í landinu hefði verið lokað vegna kórónuveirufaraldursins.

Kennslukerfið nefnist tutor-web og hefur að geyma kennsluefni, m.a. í stærðfræði, tölfræði og tölvunarfræði, ásamt æfingum sem aðstoða nemendur við að tileinka sér námsefnið. Tutor-web hefur að geyma umbunarkerfi sem felst í því að nemendur sem standa sig vel í verkefnum vinna sér inn rafmyntina Broskalla  (e. SmileyCoin) sem hægt er að geyma í rafrænu veski og nýta má til að kaupa vöru eða þjónustu af ýmsu tagi.

Kerfið þróuðu Gunnar Stefánsson, prófessor við Raunvísindadeild HÍ, og Anna Helga Jónsdóttir, dósent við sömu deild, í samstarfi við tölvunarfræðinga. 

Anna Helga Jónsdóttir er gestur Vísindakaffi og segir frá verkefninu Menntun, bálkakeðjur og rafmyntir í fátækrahverfum.

 

Vísindakaffi er viðburðaröð þar sem fjallað er um vísindi „á mannamáli“. Fræðimaður segir frá rannsóknum á sínu sviði og svo gefst gestum kostur á að ræða við hann/hana/hán og spyrja spurninga – og engar spurningar eru heimskulegar. Umsjónarmaður viðburðarins leiðir spjallið.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, verkefnastjóri 
halla.thorlaug.oskarsdottir@reykjavik.is