
Um þennan viðburð
Verkstæðin | Fiktdagar - opnir aðstoðartímar í Grófinni
Langar þig að læra að breyta myndum í photoshop, klippa myndband eða semja og taka upp þína eigin tónlist?
Komdu á Fiktdaga - opna aðstoðartíma á Verkstæðinu í Grófinni, þar sem starfsmaður kennir þér á græjurnar og forritin og aðstoðar þig við að komast af stað ef þú ert með ákveðið verkefni í huga.
Verkstæðið er fullbúið iMac tölvum og midi hljómborðum, með tónlistarforritum á borð við Ableton Live, GarageBand, Logic Pro X og Reaper. Fyrir þau sem hafa áhuga á margmiðlun er aðgangur að Adobe Creative Suite og Final Cut Pro fyrir ýmiskonar myndvinnslu og hönnun.
Opnu aðstoðartímarnir eru í boði alla miðvikudaga kl. 15 - 18 á Verkstæðinu í Grófinni, þeir eru ókeypis, opnir öllum og engin skráning. Engrar fyrirfram þekkingar krafist, bara mæta og prófa!
Aðstoðartímarnir í Grófinni eru fyrir 13 ára og eldri en yngri velkomin í fylgd með fullorðnum.
Ef þú kannt á forritin og græjurnar á Verkstæðinu en vantar bara aðstöðuna til að skapa geturðu alltaf bókað rýmið utan opnu aðstoðartímanna. Hér getur þú skoðað græjurnar sem í boði eru og bókað tíma þegar þér hentar.
Allt um Verkstæði Borgarbókasafnsins.
Viðburður á Facebook
Fyrir frekari upplýsingar:
Karl James Pestka | verkefnastjóri Verkstæða
karl.james.pestka@reykjavik.is