
Um þennan viðburð
Valdeflandi myndlist | Við prentarann
Viltu kynnast valdeflandi myndlist við prentarann í bókasafninu í Gerðubergi?
Fríða María Harðardóttir myndlistarkennari hefur undanfarin 2 ár staðið fyrir myndlistarnámskeiðum í Fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi í samstarfi við Reykjavíkurborg. Námskeiðin eru fyrir konur sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi og þá sérstaklega þær konur sem þykja líklegar til að einangrast. Námskeiðin eru hugsuð sem virkniúrræði sem hafa það að markmiði að vera valdeflandi, tengslamyndandi og að gefa þátttakendum færi á að uppgötva heilunarmátt listsköpunar.
Öll velkomin að fræðast um starf Fríðu Maríu við prentarann á bókasafninu í Gerðubergi. Heitt á könnunni og frítt að prenta.
Nánari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is