Útskriftarviðburðir listkennsludeildar LHÍ
Listkennsludeild Listaháskóla Íslands stendur fyrir útskriftarviðburði dagana 12. og 13. maí.
Dagskrá er opin öllum og fer fram í fyrirlestrarsal Borgarbókasafnsins í Gerðubergi á 2.hæð.
Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands og þar kynna verðandi kennarar lokaverkefni sín með fjölbreyttum hætti.
Börn ásamt aðstandendum eru sérstaklega boðin velkomin.
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ
Fyrirlestrar fara fram í Bergi- aðalsal
12.30
Hús opnar
12.50-13.00
Viðburður settur: Ávarp deildarforseta
13.00 - 13:30
Vigdís Þóra Másdóttir
,,Við erum að gera svona tónlist"
Tónlist í leikskóla - liður í valdeflingu barna
13.30-14.00
Dagný Arnalds
,,Mig langar bara svo að þú verðir eins og fiskur í vatni!"
Endurskoðun Aðalnámskrár tónlistarskóla og framtíðarsýn um þróun tónlistarnáms í hafsjó möguleika.
14.00-14:30
Erna Vala
15.00-15.30
Hekla Magnúsdóttir
15.30-16:00
Gunnhildur Rán
Íslenskur leir
Tenging við umhverfið, að skapa með leir úr náttúrunni
Laugardagur 13. MAÍ
Fyrirlestrar fara fram í Bergi- aðalsal
10.00-10.30
Sonja Guttensen
Fegurðin í ófullkomleikanum
Getur aukin umhverfisvitund í gegnum útikennslu verið valdeflandi fyrir nemendur?
10.30 - 11:00
Ariana
,,Við erum öll búin til úr stjörnuryki"
Starfendarannsókn unnin á smiðjum á Listasafni Íslands
11.00-11.30
Katrín María Káradóttir
Af fólki og fiskum
12.00-12:30
Elva J Thomsen
Gengið umhverfis Snæfellsjökul - Heima
12.30-13.00
Anton Logi
Frelsi til menntunar: Sjálfstætt vídeó nám
Um listkennsludeild
Nám í listkennsludeild Listaháskóla Íslands miðar að því að þjálfa leiðtogafærni í kennslu þar sem fólk úr ýmsum greinum vinnur saman og samhliða að kennslufræðilegum úrlausnarefnum, með áherslu á aðferðafræði lista. Nemendur útskrifast með kennsluréttindi á öllum skólastigum.
Allar upplýsingar um viðburðinn veitir:
Júlíana Kristín, verkefnastjóri í listkennsludeild, juliana@lhi.is