Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar
Verið velkomin á tilnefningarhátíð Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar.
Valnefnd Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2021 bárust 100 handrit að þessu sinni en hún hefur tilnefnt fimmtán bækur í þremur flokkum: flokki barna- og ungmennabóka frumsaminna á íslensku, flokki þýddra barna- og ungmennabóka og flokki myndlýsinga í barna- og ungmennabók. Ein bók í hverjum flokki hlýtur svo verðlaunin sem borgarstjóri mun afhenda síðasta vetrardag í Höfða.
Greint verður frá tilnefningum við hátíðlega athöfn á Torginu. Valnefnd skipuðu: Tinna Ásgeirsdóttir (formaður), Guðrún Lára Pétursdóttir, Ásmundur Kristberg Örnólfsson, Karl Jóhann Jónsson og Valgerður Sigurðardóttir.
Nánari upplýsingar veitir:
Kjartan Már Ómarsson, verkefna- og viðburðastjórn - Reykjavik Bókmenntaborg UNESCO
kjartan.mar.omarsson@reykjavik.is