
Um þennan viðburð
Tilbúningur | Hrekkjavökubarmmerki
Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?
Þennan fyrsta fimmtudag í október, sjálfum hrekkjavökumánuðinum, ætlum við að búa til hræðileg barmmerki. Allur efniviður er á staðnum, en um að gera að koma með eigin úrklippur eða myndir til að nota í barmmerkin.
Tilbúningur er viðburðaröð sem fer fram á söfnum okkar í Árbæ, Spöng og Úlfarsárdal.
Eigum saman notalega stund, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinendur koma með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoða við tilbúninginn..
Tilbúningur hentar skapandi fólk á öllum aldri. Börn yngri en 8 ára komi í fylgd með forráðamanni.
Kostar ekkert og engin skráning.
Nánari upplýsingar veitir:
Stella Sif Jónsdóttir | Viðburðir
stella.sif.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6270