Tilbúningur | Feluljóð
Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær njóta sín í góðum félagsskap?
Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.
Í þessum tilbúningi ætlum við að finna ljóð í felum og draga þau fram í dagsljósið.
Við tökum blaðsíðu úr bók, bæklingi, blaði eða tímariti og reynum að koma auga á orð sem kveikja áhuga okkar en strikum yfir öll orðin sem við ætlum ekki að nota þannig að úr verður ljóð.
Sæunn Þorsteinsdóttir myndlistamaður, kennari og bókavörður leiðbeinir.
Tilbúningur í Árbæ er opinn öllum.
Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.
Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar klukkan 16:00.
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250