Dúskar

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir

Tilbúningur | Dúskar

Miðvikudagur 1. mars 2023

Í tilefni af hækkandi sól, búum til litskrúðug blóm. 

Í dúskagerð nýtum við marglitt garn, vefjum og klippum, hnýtum og límum og búum til dúska bæði litla og stóra.  Á safninu verður efni, garn og pappír til að vinna úr.  Einnig er þátttakendum velkomið að taka með eigið garn eða annað efni til að nýta við dúskagerðina.

Úr dúskunum má búa til blóm, en líka skraut, skartgripi og festa á húfur. 

Öll velkomin, fullorðnir og börn!

Arnþrúður Ösp Karlsdóttir textílhönnuður, kennari og bókavörður leiðbeinir.

 

Tilbúningur er fyrsta miðvikudag í mánuði í Borgarbókasafni Spönginni og annan fimmtudag í mánuði í Borgarbókasafninu Árbæ. Þá er ýmislegt búið til og föndrað, og upplagt að eiga notalega stund saman og leyfa sköpunarkraftinum að njóta sín í góðum félagsskap. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.  

Fyrir skapandi fólk á öllum aldri. Kostar ekkert og engin skráning. 

 

Viðburðurinn á facebook

 

Nánari upplýsingar:

Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, bókavörður

arnthrudur.osp.karlsdottir@reykjavik.is

 

Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri

katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is