Tilbúningur | Dúlluhekl
Langar þig að læra að hekla dúllur / ferninga?
Heklaðir ferningar eru einföld og tímalaus hönnun og fela í sér möguleika á fjölbreytni litum og munstri. Að hekla dúllur er frábær leið til að nýta garnafganga. Margir litlir dúllur / ferningar geta orðið að stórum teppum, púðum eða ýmsu öðru.
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir kennir helstu grunnmunstur og tækni við dúlluheklið.
Eitthvað af garni og heklunálum verður á staðnum en betra er þó að þátttakendur hafi með sér heklunál af stærðinni 3-4 og garnhnotu.
Verið velkomin.
Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar klukkan 16:00.
Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250